23. nóvember 2009 |
Hörður Torfason með tónleika á Reykhólum
Söngvaskáldið Hörður Torfa kemur í heimsókn að Reykhólum og heldur tónleika í húsnæði Hlunnindasýningarinnar kl. 20.30 annað kvöld, þriðjudagskvöld. Búast má við nýju tónlistarefni í bland við gamalkunnugt og sígilt frá hendi Harðar. Tónleikarnir eru á vegum Leikfélagsins Skruggu í Reykhólahreppi. Hægt verður að kaupa kaffi og sérlega ódýrar rjómavöfflur, segir Sólveig Sigríður Magnúsdóttir, formaður Skruggu.
Aðgangseyrir er kr. 1.800. Enginn posi, bara reiðufé.
Endurvakin Skrugga í kvennagreipum