7. september 2010 |
Hreppsnefnd fjallar um ráðningu sveitarstjóra
Boðað hefur verið til fundar í hreppsnefnd Reykhólahrepps kl. 15 á fimmtudag. Meðal mála á dagskrá er ráðning sveitarstjóra. Eins og venjulega er fundarboðunina og dagskrána að finna á pdf-formi í reitnum Tilkynningar hér neðst til hægri. Fundir hreppsnefndar eru að jafnaði öllum opnir til áheyrnar nema í örfáum tilvikum þegar viðkvæm trúnaðarmál eru til umræðu og afgreiðslu.
Sjá einnig:
Tuttugu sóttu um starf sveitarstjóra Reykhólahrepps