8. nóvember 2012 |
Hreppsnefndarfundi frestað um viku
Reglulegum fundi hreppsnefndar Reykhólahrepps, sem hefði átt að vera í dag, annan fimmtudag mánaðarins, hefur verið frestað um rétta viku eða fram til 15. nóvember. Í 7. grein samþykktar um stjórn og fundarsköp Reykhólahrepps segir:
Hreppsnefnd heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði annan fimmtudag hvers mánaðar. Hreppsnefndarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 15.30. [...] Sé lögbundnum fundi frestað, frestast hann um viku.