Tenglar

20. maí 2016 |

Hreyfivika í Reykhólahreppi 23.-29. maí?

Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur undanfarin fjögur ár tekið þátt í evrópskri lýðheilsuherferð undir nafninu Now We Move. Hér á landi kallast hún Hreyfivika UMFÍ. Markmiðið er að fá hundrað milljón fleiri Evrópubúa til að hreyfa sig reglulega áður en árinu 2020 er náð. Hreyfivika UMFÍ snýst öðru fremur um það að kynna kostina sem felast í virkri hreyfingu og íþróttum. UMFÍ tekur verkefnið sem langhlaup og hvetur alla til að finna sína uppáhaldshreyfingu og stunda hana reglulega eða a.m.k. í 30 mínútur daglega.

 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá UMFÍ. Þar segir einnig:

 

Það er mjög einfalt að taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ. Félagið hvetur sambandsaðila og sveitarfélög til að gerast boðberar hreyfingar. Hlutverk boðbera er að virkja fólkið í samfélaginu, vekja athygli á því sem er í boði í Hreyfivikunni tengt lýðheilsu og íþróttum og standa fyrir viðburðum sem allir geta sótt.

 

Viðburðir í Hreyfivikunni geta verið af ýmsum toga. Það getur verið opin íþróttaæfing fyrir alla, skipulagður göngutúr, frítt í sund eða harmonikuball þar sem fólk dansar og hreyfir sig saman. Boðberar Hreyfiviku UMFÍ skrá viðburðinn á sérstakri síðu á vef félagsins. Við það fara þeir í lukkupott. Dregið verður úr pottinum í lok Hreyfivikunnar og eru vinningar frá 66°Norður.

 

Einn liður í vikunni er sundkeppni milli sveitarfélaga. Árið 2015 tóku 28 sveitarfélög virkan þátt í keppninni og syntu 4.300 einstaklingar samanlagt 4.900 kílómetra, sem er álíka og frá Íslandi til New York.

 

Fyrirkomulag sundkeppninnar:

Sveitarfélag skráir sig til leiks með því að senda tölvupóst á netfangið ragnheidur@umfi.is. Í framhaldi af því fær boðberi Hreyfivikunnar í sveitarfélaginu send öll þau gögn sem hann þarf. Heppilegast er að einn starfsmaður sundlaugar sé tengiliður og ábyrgðarmaður fyrir þátttöku sveitarfélagsins. Hlutverk tengiliðar er að sjá til þess að viðeigandi eyðublöð liggi frammi fyrir sundlaugargesti þar sem þeir skrá hversu marga metra þeir syntu. Einnig er það hlutverk tengiliðar að taka saman hve margir einstaklingar syntu hvern dag og hve marga metra. Senda þarf þessar upplýsingar daglega til starfsmanns UMFÍ á netfangið ragnheidur@umfi.is. Dæmi um skráningu: 25 manns syntu samanlagt 6.000 metra 23. maí 2016. Athygli er vakin á því að sundkennsla og sundæfingar teljast ekki með.

 

Starfsmaður UMFÍ sér síðan um að reikna út stöðu hvers sveitarfélags út frá fjölda íbúa. Staða sveitarfélaga og keppninnar í heild er send út og birt daglega um hádegi á heimasíðu UMFÍ og á Facebook-síðu félagsins.

 

Á síðasta ári myndaðist afar skemmtileg stemmning í mörgum sveitarfélögum í Hreyfiviku UMFÍ. Fólk hvatti hvert annað til þess að taka þátt, ekki að leggjast beint í heita pottinn heldur byrja á því að synda nokkrar ferðir í sundlauginni og slappa síðan af.

 

Það er von UMFÍ að þitt félag og/eða sveitarfélag taki þátt í Hreyfiviku UMFÍ 23.-29. maí.

 

Allar nánari upplýsingar veita landsfulltrúarnir Sabína Steinunn og Ragnheiður, netfang hreyfivika@umfi.is, sími 568 2929.

 

– Frá UMFÍ.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31