Tenglar

18. apríl 2015 |

Hring eftir hring ...

Sú hugmynd kom fram á foreldrafundi í Reykhólaskóla í fyrradag, að fólkið í Reykhólahreppi myndi í sameiningu stefna á að ganga samtals 500 Reykhólahringi á einum mánuði, eða frá 20. apríl til 20. maí, að báðum dögum meðtöldum (samtals 31 dagur). „Ef til dæmis fimm manna fjölskylda fer tvo hringi einn daginn eru það að sjálfsögðu samtals tíu hringir. En til að fólkið í sveitinni þurfi nú ekki að keyra út á Reykhóla til að ganga í hringi þar, þá má að sjálfsögðu taka sambærilegan hring í sveitasælunni,“ segir Jóhanna Ösp Einarsdóttir, tómstundafulltrúi Reykhólahrepps, sem kom þessu á framfæri við Reykhólavefinn og heldur utan um verkefnið.

 

Auðvitað þarf að skrá þetta allt saman og í þeim tilgangi hefur verið búin til skráningarsíða hér á vefnum. Til þess að fara inn á hana er einfaldlega smellt á kassann Hring eftir hring í dálkinum hér hægra megin (sjá myndina). Notið athugasemdadálkinn til að skrá göngurnar, tilgreinið nafn eða nöfn þeirra sem ganga og fjölda „hringja“ sem genginn er hverju sinni.

 

Að sjálfsögðu er ekki nauðsynlegt að ganga í hring, heldur er einfaldlega um það að ræða að ganga (eða rölta eða skokka eða hlaupa eins og hver vill) um það bil þá vegalengd sem nemur einum Reykhólahring. Hann er rúmur kílómetri, nánar tiltekið rétt um það bil 1.250 metrar.

 

Jóhanna Ösp hefur líka stofnað Facebooksíðu um þetta verkefni. Þar leggur meðal annarra orð í belg Guðjón D. Gunnarsson á Reykhólum (Dalli), einhver sá ötulasti þeirra sem að jafnaði ganga Reykhólahringinn. Hann segir að þeir sem ganga þjóðveginn geti áætlað vegalengdina með því að telja stikurnar. Algengt sé að um 50 metrar séu á milli stika, og þannig væri einn „hringur“ 25 stikur (50 x 25 = 1.250).

 

Líka er hægt að skrá göngurnar á Facebooksíðuna sem hér var nefnd. En ekki eru allir á Facebook, og þess vegna væri heppilegra, til að halda þessu saman, að nota áðurnefnda skráningarsíðu hér á Reykhólavefnum. Auðvitað væri gaman að fá skráningar líka á Facebook, kannski ásamt nánari upplýsingum eða frásögnum varðandi gönguferðirnar, sem jafnframt væri tilvalið að setja inn í athugasemdirnar á skráningarsíðunni hér á vefnum.

 

Athugasemdir

Jóhanna Ösp, laugardagur 18 aprl kl: 17:53

Koma svo sveitungar mínir :)

María Játvarðardóttir, sunnudagur 19 aprl kl: 19:59

Mikið líst mér vel á þetta, ekkert betra en labbitúr... Ju fara í sund

Dalli, mnudagur 20 aprl kl: 13:27

Einn hringur búinn :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31