Tenglar

18. ágúst 2009 |

Hrútadómar, Bændahátíð og Þuklaraball á Ströndum

Íturvaxnir hrútar verða metnir.
Íturvaxnir hrútar verða metnir.
1 af 3
Það verður stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum á laugardag, 22. ágúst. Þá verður haldið í sjöunda skipti Landsmót í hrútadómum en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldin Bændahátíð og Þuklaraball fram á rauða nótt. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð.

 

Landsmótið í hrútadómum hefst við Sævang kl. 14. Nóg annað verður um að vera - andlitsmálning í boði fyrir yngstu kynslóðina, ókeypis inn á safnið og sýningu þess, Strandahestar bjóða upp á hestaferðir, ljúffengt kaffihlaðborð í boði í kaffistofu setursins, skemmtiferðir farnar í dráttarvélavagni og að sjálfsögðu verður farið í leiki á íþróttavellinum.

 

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur fer fyrir dómnefnd sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum.

 

Um kvöldið kl. 20 hefst síðan Bændahátíð og Þuklaraball í Félagsheimilinu á Hólmavík. Þar verður borðað holugrillað lambakjöt að hætti Strandamanna, Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sér um skemmtiatriðin og hinir frábæru hólmvísku tónlistarmenn Stebbi og Bjarni spila síðan undir dansi fram á rauða nótt. Aðgangur að Bændahátíðinni og Þuklaraballinu er kr. 5.500. Nauðsynlegt að skrá þátttöku fyrirfram í netfangið saudfjarsetur@strandir.is eða í síma 661-2009 eða 451-3324. Aldurstakmark er 18 ár.

 
Sauðfjársetur á Ströndum
  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31