21. desember 2016 | Umsjón
Húllumhæ á Þorláksmessukvöld
Eins og í fyrra eru allir velkomnir í svolítinn gleðskap í Hólabúð kl. 20-22 á Þorláksmessukvöld. Á boðstólum verður jólaglögg og piparkökur með gráðosti og hunangi ásamt hangikjöti og ýmsu öðru góðgæti. Og jólatónlist, að sjálfsögðu.
Vonumst til að sjá sem flesta! segja Ása og Reynir í Hólabúð.