Húmorsþing Þjóðfræðistofu á Hólmavík
Meðal fyrirlesara og listamanna verða Íris Ellenberger, Ása Ketilsdóttir, Kristinn Schram, Þorsteinn Guðmundsson, Jón Jónsson, Kolbeinn Proppé, Kristín Einarsdóttir og Uppstöðufélagið. Auk fræðilegrar dagskrár verður meðal annars barþraut (pub quiz) um íslenska kímni, sýning á heimildamyndinni Uppistandsstelpur og veigamikil uppistandsdagskrá. Auk þess verður í annað sinn efnt til grínkeppninnar Orðið er laust.
Dagskrá Húmorsþingsins í einstökum atriðum er að finna hér.
Þjóðfræðistofa er rannsóknastofnun og fræðasetur sem sinnir rannsóknum og miðlun á þjóðfræði og tengdum greinum jafnt innanlands sem utan. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði fræða, menningar og lista. Fræðasetrið stendur fyrir viðburðum bæði í höfuðstöðvum sínum á Ströndum og annars staðar á landinu. Þjóðfræðistofa á samstarf jafnt við einstaklinga og stofnanir bæði hérlendis og erlendis. Jafnframt veitir Þjóðfræðistofa upplýsingar og svarar fyrirspurnum frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum.
Varðandi nánari upplýsingar um þingið um helgina má hafa samband í netfanginu dir@icef.is og síma 866 1940.