13. desember 2010 |
Hundahreinsun á Reykhólum
Hjalti Viðarsson dýralæknir verður með viðveru við Hólakaup á Reykhólum miðvikudaginn 15. desember milli kl. 16.30 og 17. Hundaeigendur á Reykhólum eru hvattir til að mæta með hund sinn á þessum tíma eða hafa samband við Hjalta í síma 434 1122 og panta tíma. Greiða þarf fyrir þjónustu dýralæknis kr. 3.000 til 4.500 eftir stærð hundsins. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Samkvæmt hollustuháttareglugerð nr. 941/2002, 15. kafla, er hundaeigendum skylt að láta ormahreinsa hund sinn árlega.