Tenglar

28. janúar 2011 |

Húshitun: Vilja þverpólitíska samstöðu um lækkun

Lögð var fram á Alþingi í gær tillaga til þingsályktunar um að sett verði á fót nefnd sem móti tillögur um lækkun húshitunarkostnaðar. Fyrsti flutningsmaður er Einar K. Guðfinnsson, þingmaður NV-kjördæmis, en meðflutningsmenn hans eru 14 aðrir þingmenn úr fjórum stjórnmálaflokkum. Einar segir að fyrir þessu séu margvísleg rök sem tíunduð eru í greinargerð með tillögunni.

 

Einar K. segir: „Við vitum að húshitunarkostnaður er orðinn mjög íþyngjandi á mörgum landsvæðum. Þetta hefur mjög verið að versna á undanförnum árum og á innan við áratug hefur kostnaðurinn aukist um allt að 72% á föstu verðlagi í dreifbýli. Þetta er auðvitað gjörsamlega óboðlegt og himinhrópandi óréttlæti. Þetta skapar svo mikið ójafnræði í þjóðfélaginu að við getum ekki hreinlega við þetta unað. Við verðum að breyta þessu.

 

Stundum hefur okkur gengið þokkalega við að ná í fjármagn til þess að lækka húshitunarkostnaðinn og stundum illa og nú síðustu árin hafa fjárveitingar farið mjög lækkandi. Núna með versnandi lífskjörum er þessi kostnaður bókstaflega farinn að sliga fólk. Það eru til dæmi um fólk sem ræður hreinlega ekki við þennan kostnaðarlið en getur svo ekki minnkað við sig húsnæði af mörgum ástæðum. Fólk er með öðrum orðum komið í algjöran vítahring.

 

Þetta er gríðarlegt réttlætismál og þetta er líka mál sem við eigum að hefja upp úr dægurþrasinu eða pólitísku þrasi. Við eigum að skapa um málið þverpólitíska samstöðu og koma því í einhvern varanlegan farveg svo við þurfum ekki stöðugt að heyja þessa varnarbaráttu um svona sjálfsagt mál. Þess vegna er lagt til að nefndin sem um þessi mál fjalli sé þverpólitísk og verði líka skipuð fulltrúum orkufyrirtækja og sveitarfélaga.

 

Miðað við það hversu góðar viðtökur málið fékk, þegar ég leitaði eftir meðflutningsmönnum, sú staðreynd að nær fjórðungur þingmanna, fólk úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki, Vinstri grænum og Samfylkingu standi að málinu, eykur mér bjartsýni að menn fari í þessi verk.“

 

Tengill á málið á vef Alþingis

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31