Tenglar

7. júní 2016 |

Hvar ertu á kjörskrá og hverjir eiga kosningarétt?

Á vefsíðunni island.is geta kjósendur flett upp kjörskrá og fundið út hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum laugardaginn 25. júní. Þegar slegin er inn kennitala birtist nafn, lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilvikum birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Kjósendur eru á kjörskrá í því umdæmi þar sem þeir eru skráðir með lögheimili þremur vikum fyrir kosningar, eða þann 4. júní. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

 

Hverjir eiga kosningarétt?

  • Kosningarétt við forsetakosningarnar 25. júní 2016 eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og lögheimili eiga hér á landi.
  • Jafnframt eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2007 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag.
  • Þá eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2007, enda hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2015.
  • Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarétt við forsetakosningar og eru því ekki á kjörskrá. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem eiga kosningarétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tíma á síðustu 10 árum fyrir þann tíma.

Athugasemdir við kjörskrá

  • Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.

 

Vefurinn island.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi.

 

Margvíslegar upplýsingar um forsetakosningarnar 2016 má finna hér á Kosningavef innanríkisráðuneytisins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31