Hvatningarverðlaun í heilsutengdri ferðaþjónustu
Til þess að tryggja áframhaldandi þróun á sviði heilsuferðaþjónustu á Íslandi hefur iðnaðarráðherra ákveðið að veita hvatningarverðlaun sem nema einni milljón króna til áhugaverðra verkefna á því sviði. Til greina koma hópar fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem vinna sameiginlega að áhugaverðum kostum sem eru í þróun á vettvangi heilsuferðaþjónustu.
Heilsuferðaþjónusta er ferðaþjónusta sem felur það í sér að ferðamaðurinn geti notið sem aðalþáttar og hvata ferðar eftirfarandi heilsuþátta: Vatns og vellíðunar, líkamsræktar, íþrótta og hreyfingar, endurhæfingar og heilsubætandi meðferða eða hátæknilækninga, auk mismunandi afþreyingar.
Við mat umsókna verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
- Verkefnishugmyndar
- Markhóps – er um nýjan erlendan markhóp að ræða?
- Er varan í boði á lágönn?
- Hvað er einstakt við vöruna – upplifunin?
- Hver er heilsuávinningur ferðar?
- Samsetningar hóps og vel skilgreindra hlutverka innan samstarfshópsins
- Vandaðra umsókna
Umsóknum skal skilað til Ferðamálastofu í tölvupósti eigi síðar en 20. nóvember á sérstöku umsóknareyðublaði. Verðlaunin verða veitt í næsta mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Hlín Sigurðardóttir hjá Ferðamálastofu.