Hvenær eiga Reykhóladagarnir að vera?
Byggðarhátíðin Reykhóladagurinn hefur verið haldin hátíðleg í lok ágúst í nokkur ár. Á síðasta ári breyttist nafngiftin og talað var um Reykhóladaga, vegna þess að þá spönnuðu viðburðirnir allt frá föstudegi til sunnudags. Væntanlega verður svo einnig í ár, og jafnvel allt frá fimmtudegi.
Spurningunni um tímasetningu Reykhóladaganna var velt upp hér á vefnum í lok síðasta mánaðar. Þá komu fram þær skoðanir, að þeim skyldi flýtt til fyrstu helgarinnar í ágúst. Meðal annars væri heppilegt að tengja þá með einhverjum hætti við Ólafsdalshátíðina, sem er haldin um þá helgi.
Jafnframt má spyrja álits á því, hvort vilji sé fyrir því að tala um Reykhólahátíð fremur en Reykhóladaga.
Endilega látið í ljós álit á þessu, annað hvort hér í athugasemdadálkinum eða í tölvupósti til Hörpu Eiríksdóttur - nema hvort tveggja sé!
Sjá einnig:
30.01.2011 Er rétt að færa Reykhóladaginn framar?
31.08.2010 Um 400 manns sóttu viðburði laugardagsins
25.08.2010 Mjög fjölbreytt dagskrá á Reykhóladögum 2010
20.08.2008 Reykhólahreppur meðal stofnenda Ólafsdalsfélagsins
Björk Stefánsdóttir, mivikudagur 23 febrar kl: 22:51
frábært að fá umræðu um þetta svona snemma,
mér líst vel á helgina 12-14. ágús, hef góða tilfinningu fyrir góðu veðri þá haha