Hverjir vilja fara á kvæðamannamót?
Verið er að kanna áhuga fólks á suðursvæði Vestfjarða á þátttöku í kvæðamannamóti sem haldið verður laugardaginn 3. mars á Siglufirði, í bæ Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar þjóðlagasafnara. Kvæðamannafélagið Ríma á Siglufirði stendur fyrir mótinu í samstarfi við Kvæðamannafélagið Gefjun á Akureyri. Vitað er að austfirskir og þingeyskir kvæðamenn munu fjölmenna á mótið auk þess sem Iðunn í Reykjavík verður þar með fulltrúa.
Þeir sem hefðu áhuga á því að vera með hafi samband við Magnús Ólafs Hansson á Patreksfirði í tölvupósti eða síma 490 2301.
Drög að dagskrá:
- 12.00 - gestir boðnir velkomnir og kynna sig yfir léttum hádegisverði
- 13.30 - námskeið*
- 15.00 - stund fyrir spjall með kaffibolla og kleinu
- 15.45 - námskeið*
- 17.15 - hvíld fyrir kvöldvöku
- 19.00 - kvöldvaka**
* Bára Grímsdóttir kvæðakona hefur staðfest komu sína á mótið. Hún og hennar maður Chris Foster eru tilbúin að kenna allt mögulegt sem viðkemur kvæðamennsku og íslenskum þjóðlögum, svo sem kvæðalög, hvernig á að spila á langspil og fiðlu, tvísöngva hvers konar, útsetningar og flutningsmáta. Þau eru opin fyrir hugmyndum og óskum frá væntanlegum þátttakendum.
** Á kvöldvökunni verður kveðið saman og einstaklingar og hópar verða með skemmtiefni, auk þess sem Bára og Chris koma fram. Boðið verður upp á einfalt og gott í matinn, svo sem íslenska kjötsúpu í aðalrétt og kaffi og pönnukökur með sultu og rjóma í eftirrétt. Eftir matinn verður „gömludansaball“ með þjóðlegu ívafi.
Kostnaður: Mótshaldarar hafa fengið styrk til að halda þetta mót og eiga von á fleiri styrkjum. Ætlunin er að halda kostnaði til þátttakenda í lágmarki.
„Kvæðamannafélög eru starfandi víða um land, fámenn og einangruð. Ég hef trú á því að ef við tökum höndum saman, þá eigum við eftir að fá jákvæða athygli svo að fleiri bætist í hópinn. Þetta mót verður vonandi til þess að efla starfsemina hjá okkur öllum“, segir Magnús Ólafs Hansson.
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði