Tenglar

13. ágúst 2009 |

Hverjir vilja troða upp í hléum í spurningakeppninni?

Um þessar mundir er unnið af kappi að undirbúningi Reykhóladagsins sem að þessu sinni verður laugardaginn 29. ágúst. Forsmekkurinn að honum verður spurningakeppni dagana á undan eins og hér hefur verið greint frá. Óskað er eftir skemmtilegum atriðum til þess að sýna í hléum í keppninni. Kolfinna Ýr í síma 861 3761 tekur á móti þeim sem hafa áhuga og eiga sér draum um að koma fram.

 

Jafnframt skal minnt á sveitamarkaðinn sem áður hefur verið getið hér á vefnum. Á Reykhóladaginn er ætlunin að vera með markað þar sem hægt verður að smakka og kaupa heimaframleiðslu fólks í héraðinu. Spurt er hvort eitthvað leynist í eldhúsinu sem fólk vill deila með öðrum. Í því efni er það einnig Kolfinna Ýr í ofangreindum síma sem veitir nánari upplýsingar og tekur við skráningum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31