30. maí 2009 |
Hvítasunnan: Fermingarmessa og sameiginleg messa
Fermingarmessa verður í Garpsdal við Gilsfjörð á hvítasunnudag kl. 14. Þar verður fermdur Jósep Friðrik Guðbjörnsson. Annan dag hvítasunnu kl. 14 verður í Reykhólakirkju sameiginleg messa allra sóknanna sex í Reykhólaprestakalli. Prestur er séra Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur.
Af sóknum Reykhólaprestakalls eru fjórar í Reykhólahreppi / Austur-Barðastrandarsýslu - Garpsdalssókn, Reykhólasókn, Gufudalssókn og Flateyjarsókn, og tvær í Dalabyggð / Dalasýslu - Staðarhólssókn og Skarðssókn.