Hvorki Ísland né Reykhólahreppur undanskilin
Böðvar Jónsson skógræktarmaður í Skógum í Þorskafirði sendi vefnum slóð á heimildamynd á YouTube um skóga, eðli þeirra og mikilvægi í lífkeðju heimsins (Skógurinn og við - Of Forests and Men). Sameinuðu þjóðirnar útnefndu árið 2011 alþjóðlegt ár skóga og var þessi mynd gerð í tilefni af því. Hér er með henni íslenskur texti í flutningi Egils Ólafssonar leikara.
„Upplýsingarnar sem koma fram í myndinni gilda fyrir skóga um allan heim“, segir Böðvar. „Þar eru hvorki Ísland né Reykhólahreppur undanskilin, en það væri áhugavert að skoða hvort við gætum ekki lagt stærra lóð á vogarskálina en nú er.“
► Smellið hér til að horfa á myndina. Hún er tæplega átta mínútna löng.
Sjá einnig:
► Böðvar Jónsson - Til nágranna og sveitunga í Reykhólahreppi (25. okt. 2009)