Tenglar

2. júlí 2012 |

IMC býður í súpu og kynningu á starfseminni

Með skel á leið í flokkun: Oddur Carl Thorarensen, Bergsveinn Reynisson og Jón Ingiberg Bergsveinsson.
Með skel á leið í flokkun: Oddur Carl Thorarensen, Bergsveinn Reynisson og Jón Ingiberg Bergsveinsson.

Súpufundur júlímánaðar í Reykhólahreppi verður annað kvöld, þriðjudagskvöldið 3. júlí. Hann verður á nýjum stað eða niðri við bryggju í Króksfjarðarnesi þar sem Icelandic Mussel Company ehf. (IMC) verður með kynningu. IMC býður gestum súpuna og jafnframt verður starfsemi fyrirtækisins kynnt. Húsið verður opnað kl. 18.30.

 

IMC er að hefja ræktun, vinnslu og útflutning á bláskel (kræklingi). Stefnt er að því að skelvinnsla standi yfir þegar fundurinn verður og þannig gætu gestir kynnst því aðeins hvernig vinnslunni er háttað.

 

Vonast er til þess að sem flestir komi, sveitungar jafnt sem gestir í héraðinu, til að kynna sér hið nýja hlutverk sem gamla sláturhúsið í Króksfjarðarnesi hefur fengið.

 

Skelvinnslan í Nesi: Allt að gerast hjá IMC

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31