26. júní 2015 |
Íbúafundur um Reykhóladaga 2015
Boðað er til almenns íbúafundar í borðsal Reykhólaskóla kl. 17 á mánudag, 29. júní, þar sem rætt verður um byggðarhátíðina Reykhóladaga 2015. Þeir sem hafa hugmyndir eða skoðanir eða vilja taka þátt í Reykhóladögunum með einum eða öðrum hætti eru eindregið hvattir til að koma, og líka þeir sem vilja bara fylgjast með.
Reykhóladagarnir eru haldnir síðustu helgina í júlí, að þessu sinni dagana 23.-26. júlí, eða frá fimmtudegi og fram á sunnudag.