12. mars 2012 |
Íbúafundur um Reykhólahérað „allan ársins hring“
Unglingarnir í Reykhólaskóla efna til íbúafundar í matsal Reykhólaskóla kl. 20 á fimmtudag, 15. mars. Þar verða kynntar þær hugmyndir sem krakkarnir völdu í fyrri hluta verkefnisins Landsbyggðarvinir og tengist fundurinn verkefninu Reykhólar allan ársins hring. Vonast er eftir góðri þátttöku, bæði til að heyra hugmyndir krakkanna og til að taka þátt í að koma þeim hugmyndum í sem allra bestan farveg.
Kaffi á könnunni.
Harpa Eiríksdóttir ferðamálafulltrúi veitir nánari upplýsingar í netpósti og síma 894 1011.