25. nóvember 2016 | Umsjón
Íbúafundur um fjárhagsáætlun Reykhólahrepps
Sveitarstjórn boðar til íbúafundar um fjárhagsáætlun Reykhólahrepps fyrir árið 2017 miðvikudaginn 30. nóvember. Fundurinn verður í matsal Reykhólaskóla og hefst kl. 17. Farið verður yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 og kynntir helstu málaflokkar í rekstri sveitarfélagsins.
Íbúar eru hvattir til að mæta, kynna sér málefni sveitarfélagsins og taka þátt í umræðum.