Tenglar

30. september 2021 | Sveinn Ragnarsson

Íbúafundur um sameiningarmál

Reykhólahreppur vinnur að greiningu sameiningarvalkosta. Markmið verkefnisins er að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri Reykhólahrepps ef til sameiningar sveitarfélagsins kemur. Í því felst jafnframt að greina sameiningarvalkosti.

 

Boðað er til íbúafundar mánudaginn 4. október  kl. 20:00 - 21:30 í matsal Reykhólaskóla.  

Á fundinum verður kynning á verkefninu og leitað sjónarmiða íbúa. Spurt verður hvort Reykhólahreppur á að hefja sameiningarviðræður? Ef svo er, hvaða valkostir ættu að vera í forgangi?

Að lokum hver ættu að vera áhersluatriði Reykhólahrepps í viðræðum?

 

Fundinum verður einnig streymt á Facebooksíðu Reykhólahrepps.

 

Á fundinum notum við rafrænt samráðskerfi svo allir sitji við sama borð, þ.e. þeir sem mæta á fundarstað og þeir sem fylgjast með í streymi. Auk þess verður boðið upp á spurningar og ábendingar úr sal.

 

Til að taka þátt á menti.com þarf að hafa síma, snjalltæki eða tölvu og fara inn á síðuna menti.com. Slá þar inn töluröð sem gefinn verður upp á fundinum og þá opnast samráðskerfið.

 

Gestur á fundinum verður Gauti Jóhannesson forseti sveitarstjórnar Múlaþings og fyrrum sveitarstjóri Djúpavogshrepps.  Gauti mun segja stuttlega frá reynslu Djúpavogs við endurreisn eftir að hafa orðið fyrir miklu áfalli árið 2014, þegar meirihluti aflaheimilda sveitarfélagsins voru fluttar annað. Eins mun hann segja frá reynslu þeirra af því að taka þátt í sameiningarviðræðum á Austurlandi og hvernig gangi í nýja Múlaþingi.

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Verkefnishópur um valkostagreiningu fyrir Reykhólahrepp.

 

 
 

 

Athugasemdir

Gunnar Sveinsson, mnudagur 04 oktber kl: 18:46

Vonast til að þessi fundur verði góður og upplýsandi. Gott væri að Flateyingar bæði ábúendur og húseigendur munu fá allar fregnir af þessum fundi. Þykist vita að langt er að sækja sjóleiðis og erfitt sækja fundi í þessu leiðinda veðri sem hefur verið rikjandi undanfarna daga. ´Átta eru þeir sem eiga lögskráningu í Flatey en fjörutíu og sjö hús og húshlutar eru í Flatey og að þeim standa yfir 600 manns. Allt þetta fólk þarf auðvitað að vita hvað verður um þessa "perlu" Reykhóla og hvar hún muni eiga sér heimili til framtíðar. Við höfum auðvita skoðun á því.
Gunnar Sveinsson
Eyjólfshúsi - Flatey

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31