30. nóvember 2016 | Umsjón
Íbúafundurinn um fjárhagsáætlunina
Minnt skal á íbúafund um fjárhagsáætlun Reykhólahrepps fyrir næsta ár sem verður í matsal Reykhólaskóla í kvöld, miðvikudag, og hefst kl. 17. Farið verður yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 og kynntir helstu málaflokkar í rekstri sveitarfélagsins. Íbúar eru hvattir til að koma á fundinn, kynna sér málefni sveitarfélagsins og taka þátt í umræðum.