11. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Íbúaþingið: Þátttaka langt fram úr björtustu vonum
Almenn þátttaka í íbúaþinginu (vinnufundinum) á Reykhólum í gær fór langt fram úr björtustu vonum þeirra sem að því stóðu. Úrvinnsla þess sem fram kom á þessum tvíþætta fundi tekur nú við. Greint verður frá þinginu með mun ítarlegri hætti hér á vefnum á morgun ásamt fjölda mynda. Frétt um 25 ára afmæli Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar núna í dag, 11. mars, sem kemur inn á vefinn hér strax á eftir, verður látin standa efst þangað til.
Myndina sem hér fylgir tók Þórarinn Ólafsson.
Þessu tengt: Munið eftir könnuninni sem sett var hér inn í gær og takið þátt í henni!