2. ágúst 2022 | Sveinn Ragnarsson
Íbúi ársins í Reykhólahreppi...?
Nú er komið að því að velja íbúa ársins. Ef þið viljið tilnefna íbúa ársins þá er tekið við tilnefningum til 10. ágúst.
Kíkið í kringum ykkur og takið eftir öllu þessu frábæra sem fólkið í sveitarfélaginu hefur verið að taka sér fyrir hendur, hvort sem það er í atvinnustarfsemi, góðgerðarstarfi eða bara almennilegheit í garð samborgaranna.
Senda má tilnefningar á netfangið: johanna@reykholar.is