Iðulega þarf að aðstoða vegfarendur í vandræðum
Á liðnu ári voru einir fimm bílar aðstoðaðir á Þorskafjarðarheiði, tveir sem lentu í vandræðum vegna hálku við Geitará, fjórir voru dregnir úr Bæjarárskafli, einn var dreginn yfir Þröskulda, þrír voru aðstoðaðir á Klettshálsi, og loks bað Björgunarsveitin Ósk í Búðardal einu sinni um leit að manni.
Björgunarsveitin Heimamenn eignaðist á síðasta ári allt húsið að Suðurbraut 5 á Reykhólum, sem hefur hingað til einnig hýst Slökkvilið Reykhólahrepps. Sveitin á snjóbíl sem reyndar verið lítið notaður síðustu fimmtán árin nema við raflínuviðgerðir. Einnig eru í eigu hennar vörubíll til að flytja snjóbílinn, Land-Rover, slöngubátur og einn elsti vélsleði landsins.
Alltaf er töluvert stúss við flugeldasöluna og sýninguna og áramótabrennuna þegar hún er á vegum Heimamanna, en þar hefur unga fólkið verið duglegt að aðstoða. Ein stúlka fór í gæslu á hestamannamóti á Kaldármelum og fékk sveitin dágóða upphæð fyrir þær fimm vaktir sem hún tók.
Stjórn Björgunarsveitarinnar Heimamanna skipa Jens Hansson í Mýrartungu, formaður, Gústaf Jökull Ólafsson á Reykhólum, Einar Hafliðason í Fremri-Gufudal og Guðmundur Ólafsson á Litlu-Grund.
Upplýsingarnar í þessum pistli eru fengnar hjá Erlu Reynisdóttur í Mýrartungu, sem er félagi í Björgunarsveitinni Heimamönnum.