Tenglar

31. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is

Illa gengur að fá fólk til starfa á Reykhólum

Auglýsingin í atvinnukálfi Fréttablaðsins í dag.
Auglýsingin í atvinnukálfi Fréttablaðsins í dag.

Í atvinnuauglýsingakálfi Fréttablaðsins í dag auglýsir Reykhólahreppur laus störf í mötuneyti hreppsins (sameiginlegu mötuneyti Reykhólaskóla og Barmahlíðar). Ekkert atvinnuleysi er skráð í sveitarfélaginu og verður það að teljast gleðilegt en á móti kemur að afar illa gengur að fá fólk. Á undanförnum misserum hefur margoft verið auglýst eftir fólki til hinna og þessara starfa á Reykhólum en viðbrögð hafa yfirleitt verið sáralítil og í héraðinu hafa þau verið nánast engin.

 

Sérkennilegt má því telja hversu margir sóttu um tímabundna vinnu við þangslátt hjá Þörungaverksmiðjunni sem auglýst var fyrir skömmu en í gær höfðu yfir 90 umsóknir borist. Engin þeirra var hins vegar úr Reykhólahreppi.

 

Eitthvað er um húsnæði á lausu á Reykhólum en að vísu ekki hjá hreppnum um þessar mundir. Ekki strandar á plássi í leikskóla og grunnskóla á Reykhólum.

 

Í þeim vandræðum sem hér um ræðir bætir ekki úr skák sú annars mjög ánægjulega staðreynd að hátt í tugur kvenna í sveitarfélaginu er í fæðingarorlofi og vísbendingar um að þeim fjölgi enn á næstunni.

 

Meðal vinnustaða á Reykhólum þar sem illa hefur gengið að fá fólk er Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð. Stjórn Barmahlíðar kom saman til fundar í síðustu viku og var aðeins eitt mál á dagskrá. Eftirfarandi var bókað:

  • Rætt um starfsmannamál í Barmahlíð. Vöntun er á starfsfólki, dæmi eru um að fólk áhugasamt um störf gerir kröfu um frítt húsnæði og/eða fæði meðan á dvöl stendur til styttri eða lengri tíma.
  • Sveitarstjórn Reykhólahrepps er bundin af kjarasamningum, jafnræði og meðalhófi. Því verður að árétta að um slíkt er ekki hægt að semja.

 

Atburðadagatal

« Febrar 2026 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28