21. desember 2016 | Umsjón
Ilmurinn er indæll og bragðið eftir því
Lionsfólk efnir sem endranær til skötuveislu í borðsal Reykhólaskóla milli klukkan 12 og 14 á Þorláksmessu. Viðeigandi meðlæti og útálát (hnoðmör og hamsatólg). Viðvaningar og viðkvæmt fólk geta fengið saltfisk.
Verð kr. 2.500 fyrir fullorðna, þúsundkall fyrir 10-16 ára en frítt fyrir yngri.