Tenglar

25. september 2018 | Sveinn Ragnarsson

Inflúensubólusetning

Bólusetning gegn árlegri inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum.

 

Bóluefnið inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B.

 

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.

 

Ofangreindum forgangshópum stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð.

 

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.  Nánari upplýsingar er að finna á vef landlæknisembættisins http://www.landlaeknir.is/

 

Hægt verður að mæta í bólusetningu án þess að bóka tíma í Búðardal þriðjudag 25. september milli kl. 9-12 og 13-16 og á Reykhólum föstudag 28. september milli kl. 11-14.

 

Tímabókanir eru í síma 432 1450 eða 432 1460 (Reykhólar)

 

Starfsfólk HVE-Búðardal / Reykhólum

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31