18. september 2015 |
Inflúensubólusetning hafin
Bóluefni gegn árlegri inflúensu er komið og bólusetning hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum. Sóttvarnalæknir mælist til að meðal annarra eftirtaldir hópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
- Allir 60 ára og eldri.
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Þungaðar konur.
Vakin er athygli á því, að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.
Sjá nánari upplýsingar hér (pdf)