11. nóvember 2021 | Sveinn Ragnarsson
Inflúensubólusetning í Búðardal í dag, 11/11
Í dag fimmtudaginn 11.11.21 er íbúum á starfssvæði HVE Búðardals/Reykhólum boðið að mæta í bólusetningu gegn árlegri inflúensu á heilsugæslustöðina í Búðardal án þess að bóka tíma – opið er til kl. 15:00.
Þau sem ekki geta nýtt sér að koma í dag en óska eftir bólusetningu er bent á að hafa samband í síma 432 1450 sem fyrst til að panta bóluefni og bóka tíma.
Einstaklingar í eftirtöldum forgangshópum eru sérstaklega hvattir til að bregðast við og mæta eða láta vita af sér á meða enn er til bóluefni:
- Allir 60 ára og eldri,
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælamdi sjúkdómum,
- Barnshafandi konur.
Vinsamlegast mætið með grímu.
Fyrirhugað er að bjóða upp á örvunarbólusetningar vegna Covid-19 á næstu vikum – nánar auglýst síðar.