Inga Hrefna á opnu húsi í Konnakoti
Barðstrendingafélagið í Reykjavík verður með opið hús í Konnakoti, samkomusal félagsins, Hverfisgötu 105, miðvikudaginn 19. nóvember klukkan 20. Þar mun Inga Hrefna Jónsdóttir sálfræðingur frá Mýrartungu II flytja fyrirlestur um Kraft hugans - hugræna atferlismeðferð. Síðan gefst tími fyrir spjall og léttar veitingar.
Félagið er þessa dagana að vinna í því að virkja félagsmenn til þátttöku í hvers kyns viðburðum. Dæmi um viðburði hjá félaginu eru fjáröflunardagur á vegum Kvennadeildar, jólakortagerð, samverustund í Heiðmörk, rútuferðir á sumrin, dansleikir og jólavaka sem verður í desember.
Átthagafélög eru ekki síst mikilvæg þegar mikið bjátar á því þangað er hægt að sækja vináttu, gleði og stuðning um leið og maður styrkir ræturnar sem liggja í okkar tilfelli í Vestur- og Austur-Barðastrandarsýslum.
Hlökkum til að sjá sem flesta í Konnakoti 19. nóvember kl. 20.
(Frá Barðstrendingafélaginu í Reykjavík).