30. apríl 2020 | Sveinn Ragnarsson
Ingibjörg Birna ráðin sveitarstjóri á ný
Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í dag var ákveðið að ráða Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur í starf sveitarstjóra.
Ingibjörg er flestum hnútum kunnug hjá Reykhólahreppi, því hún var sveitarstjóri frá árinu 2010 – 2018. Síðan þá hefur hún gegnt starfi framleiðslustjóra við saltverksmiðju Norðursalts á Reykhólum.