16. september 2011 |
Íslensk kjötsúpa í Bjarkalundi að venju
„Við í Bjarkalundi verðum með hina árlegu réttardags-kjötsúpu bæði laugardag og sunnudag og vonumst til að sjá sem flesta til að viðhalda þessari gömlu hefð“, segir Kolbrún Pálsdóttir í Bjarkalundi. Kjötsúpan verður til reiðu frá klukkan hálftólf fyrir hádegi og fram til klukkan níu á kvöldin báða dagana.