Tenglar

30. janúar 2012 |

Íþrótta- og sundæfingar barna og unglinga að byrja

Grettislaug á Reykhólum / ÁG.
Grettislaug á Reykhólum / ÁG.
1 af 2

Íþróttaæfingar barna og unglinga í íþróttahúsinu á Reykhólum sem Sirrý Birgis annast byrja á miðvikudag, 1. febrúar. Sundæfingar í Grettislaug sem Andrea Björnsdóttir annast byrja á mánudag, 6. febrúar. Æfingarnar eru á vegum Umf. Aftureldingar og verða síðan þessa daga í viku hverri eitthvað fram á vor. Skráðir félagar í Umf. Aftureldingu greiða engin æfingagjöld en aðrir greiða kr. 2.000. Æfingarnar verða á þessum tímum:

 

Íþróttaæfingarnar á miðvikudögum kl. 15-15.40 fyrir 1.-3. bekk og kl. 15.40-16.20 fyrir 4.-10. bekk.

 

Sundæfingarnar á mánudögum kl. 15.15-16.15 fyrir 1.-10. bekk.

 

Meðfylgjandi loftmyndir af Grettislaug og íþróttahúsinu tók Árni Geirsson. Myndasyrpurnar sem hann hefur tekið sveimandi á flygildi yfir Reykhólasveit er að finna undir Ljósmyndir > Ýmis myndasöfn í valmyndinni hér vinstra megin.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31