1. september 2015 |
Íþróttaálfurinn og Solla stirða á uppskeruhátíðinni
Uppskeruhátíð barna- og ungmennastarfs Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) og aðildarfélaga verður haldin við Grunnskólann á Reykhólum annað kvöld, miðvikudag, og hefst kl. 18. Allir eru velkomnir á hátíðina. Veittar verða viðurkenningar fyrir góða þátttöku, framfarir og góðan árangur í íþróttastarfi UDN. Grillaðir hamborgarar í boði. Íþróttaálfurinn og Solla stirða hafa staðfest að þau muni mæta hress og kát á svæðið.
Endilega mætið í UDN-fatnaði ef þess er nokkur kostur.
Dýri Kristjánsson, fimmtudagur 03 september kl: 10:27
Sæl öll,
Það var virkilega skemmtilegt að fá að koma til ykkar og verja skemmtilegum tíma með ykkur.
Kærar þakkir fyrir okkur,
Dýri Kristjánsson og María Ólafsdóttir