Tenglar

30. júní 2015 |

Íþróttagallar á ungmenni 6 til 16 ára

Hópurinn í búningunum í marki.
Hópurinn í búningunum í marki.
1 af 2

Öll ungmenni á aldrinum 6-16 ára innan vébanda Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) fá jakka að gjöf frá sambandinu. Meðal aðildarfélaga UDN er Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi. Jakkinn er með auglýsingum frá fyrirtækjum á Dala- og Reykhólasvæðinu, sem styrkja starfið. Hjá Aftureldingu voru jakkarnir afhentir þeim ungmennum sem komu á fyrsta kvöldmót félagsins í Búðardal í gærkvöldi.

 

Síðan getur fólk pantað buxur og peysur að vild til viðbótar. Gallinn er rauður og svartur og hvítur, buxurnar svartar. Hafið samband við Herdísi Ernu Matthíasdóttur á Reykhólum. Hún tók myndirnar sem hér fylgja.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31