Tenglar

31. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

Jeppi eyðilagðist í bílskúrsbruna á Reykhólum

Frá Reykhólum. Ljósm. Árni Geirsson.
Frá Reykhólum. Ljósm. Árni Geirsson.

Tveir slökkviliðsmenn á Reykhólum voru seint í gærkvöldi fluttir með sjúkrabíl suður á Akranes vegna gruns um að þeir hefðu orðið fyrir reykeitrun við slökkvistarf. Þetta var gert í öryggisskyni en mönnunum heilsast vel. Milli kl. tíu og hálfellefu var Slökkvilið Reykhólahrepps kallað út vegna mikils elds í bílskúr við Hellisbraut. Greiðlega gekk að slökkva en jeppi af gerðinni Nissan Terrano II eyðilagðist sem og ýmis verkfæri sem þarna voru og líka hurðir og gluggar á bílskúrnum sem er steinsteyptur.

 

Atburðadagatal

« Október 2026 »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31