26. mars 2021 | Sveinn Ragnarsson
Jóhanna Ösp tekin við formennsku
Jóhanna Ösp Einarsdóttir er tekin við formennsku Fjórðungssambands Vestfirðinga. Hún tekur við af Hafdísi Gunnarsdóttur á Ísafirði.
Á síðasta Fjórðungsþingi fengu þær báðar tilnefningu til formennsku og varð að samkomulagi að þær skiptu kjörtímabilinu á milli sín.
Aðrir í stjórn FV, auk Jóhönnu og Hafdísar, eru Þórir Guðmundsson Ísafjarðarbæ, Kristján Jón Guðmundsson Bolungarvík og Iða Marsibil Jónsdóttir Vesturbyggð.