21. júlí 2016 |
Jói í Skáleyjum ríður net
Í tilefni Reykhóladaganna er frítt inn á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum um helgina. Aftur á móti verður þar söfnunarbaukur sem gestir geta stungið einhverju í, ef þeir vilja styrkja sýninguna. Á laugardaginn ætlar Jói í Skáleyjum (Jóhannes Geir Gíslason) að ríða net á þeim tíma þegar kaffihlaðborðið verður (kl. 12-16). Hann verður ekki allan tímann, en ýmsir ættu þó að hitta á hann.
Myndin sem hér fylgir, þar sem Jói er að ríða net, var tekin á ættarmóti Skáleyinga á Reykhólum fyrir fimm árum.