25. maí 2012 |
Jökull Kristjánsson jarðsunginn á Patreksfirði
Jökull Kristjánsson á Reykhólum, sem lést á líknardeild Landspítalans 15. maí eftir erfið veikindi, 48 ára að aldri, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju kl. 14 á morgun, laugardag. Hann lætur eftir sig þrjú börn, tvö þau yngri búsett á Reykhólum, og einn sonarson. Jökull heitinn var frá Patreksfirði.
Eyvindur, laugardagur 26 ma kl: 08:20
Bridgefélagar í Bridgefélagi Hólmavíkur senda börnum, ættingjum og vinum samúðarkveðjur og eru þakklátir fyrir að hafa þekkt Jökul.