1. nóvember 2016 | Umsjón
Jóla- og villibráðarhlaðborðin í Bjarkalundi
Villibráðarhlaðborð verða tvö laugardagskvöld í röð í Bjarkalundi í aðdraganda jóla eins og hefðbundið er, hið fyrra núna á laugardaginn (5. nóv.) og hitt viku síðar. Veislustjóri verður Júlíus Guðmundsson og sér hann um fjörið eftir matinn og fram eftir nóttu. Eins og endranær verða bornir fram hefðbundnir jóla- og villibráðarréttir auk annars góðgætis af ýmsu tagi.
Verð á hlaðborðið er kr. 8.900 á mann og tilboðsverð á hlaðborðið og síðan gistingu og morgunmat er kr. 15.900.
Pantanir berist sem fyrst í netfangið bjarkalundur@bjarkalundur.is eða í síma 434 7762 (Bjarkalundur), 695 2091 (Árni) eða 699 6245 (Inga).