3. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Jólaball Kötlu verður á laugardag
Jólaball Kvenfélagsins Kötlu í Reykhólahreppi, sem frestað var sakir óveðursins, verður í íþróttasal Reykhólaskóla á laugardag, 5. janúar, og stendur frá kl. 13 til 15. Jólasveinarnir láta sjá sig. Kaffiveitingar í boði kvenfélagsins. Allir velkomnir.
Og jólunum lýkur reyndar ekki fyrr en daginn eftir, á þrettándanum (þrettánda degi jóla) 6. janúar.