Tenglar

19. desember 2014 |

Jólaball á Hólmavík annan í jólum

Kannski kemur þessi / Wikipedia.
Kannski kemur þessi / Wikipedia.

Jólatrésnefndin hjá góðum grönnum okkar í Strandabyggð minnir á hið árlega jólaball sem haldið verður annan í jólum í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst kl. 14. Allir íbúar á Ströndum og í grannhéruðum eru hjartanlega velkomnir á skemmtunina. Boðið verður upp á ekta íslenska jólaballastemmningu með skemmtilegum jólalögum undir stjórn Barböru Guðbjartsdóttur.

 

Dansað verður í kringum jólatréð og vonandi sjá jólasveinar sér fært að kíkja í heimsókn, jafnvel með eitthvert góðgæti í poka, segir Salbjörg Engilbertsdóttir á Hólmavík. Verð er 500 krónur á barn.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31