21. desember 2014 |
Jóladagatalið: Einn þáttur á netið á dag frá Hólmavík
Núna á aðventunni kemur á netið í leiklesinni útgáfu einn þáttur á dag úr Jóladagatalinu, leikriti sem félagar í Leikfélagi Hólmavíkur flytja. Þættirnir eru þrettán rétt eins og jólasveinarnir og birtist sá síðasti á aðfangadag eins og hann Kertasníkir. Leikritið sömdu fimm manns í leikfélaginu árið 1989 eða fyrir aldarfjórðungi. Það hefur tvisvar verið sýnt á Hólmavík, 1989 og 2000, og líka hafa leikfélög og skólahópar annars staðar á landinu tekið það til sýningar.
Hver hluti tekur nokkrar mínútur í flutningi. Hér má finna slóðir á hvern þeirra fyrir sig. Eins og áður segir bætist þar við einn á degi hverjum fram á aðfangadag.