29. nóvember 2015 |
Jólaglögg, laufabrauð og gítarleikur
Jólaglögg og laufabrauð verður í boði fyrir (h)eldri borgara héraðsins í Barmahlíð á Reykhólum klukkan hálfátta annað kvöld, mánudag. Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Kaplaskjóli í Fremri-Gufudal kemur með gítarinn og leikur nokkur vel valin jólalög. Allir (h)eldri borgarar velkomnir!