Tenglar

10. desember 2009 |

Jólamarkaður hjá Strandakúnst

Handverkshópurinn Strandakúnst verður eins og endranær með jóla-handverksmarkað á Galdrasafninu á Hólmavík fyrir þessi jól. Hann verður opnaður í dag og er áætlað að hafa opið kl. 13-16 alla daga til jóla. Þar verður að vanda hægt að fá m.a. alls konar hlýtt og klæðilegt og þjóðlegt dót, handgert af Strandamönnum, unnið með ást og alúð úr ull og garni og heppilegt til að prýða og ylja þeim sem eru svo heppnir að eignast húfu, vettlinga, sokka eða peysur og trefla. Svo er ýmislegt annað á boðstólum, gott í gogginn, gott til gjafa og gott til að lýsa upp skammdegið, að því er fram kemur á Strandavefnum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31