Tenglar

24. nóvember 2009 |

Jólamarkaður og kaffi í Nesi um helgina

Jólamarkaður verður í Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi á laugardag og sunnudag (28. og 29. nóvember) frá kl. 13 til 18 báða dagana. Mörg félög í Reykhólahreppi selja þarna ýmsan varning til jólanna og aðrar vörur, svo sem kort, jólapappír, perur, kerti, handunna muni, greni og margt fleira. Auk þess verður Kvenfélagið Katla með kaffisölu.

 

Seljendur eru Handverksfélagið Assa, Lionsklúbburinn, Vinafélag Barmahlíðar, Krabbameinsfélag Breiðfirðinga, Björgunarsveitin Heimamenn og Kvenfélagið Katla. Þau sem að markaðinum standa hvetja fólk til að versla í heimabyggð og lofa jólastemmningu í Kaupfélaginu!

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31