Tenglar

27. nóvember 2009 |

Jólamarkaðurinn í Króksfjarðarnesi um helgina

Minnt skal á jólamarkaðinn í Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi um helgina, bæði á laugardag og sunnudag kl. 13-18 báða dagana. Félög sem starfa í Reykhólahreppi selja þar ýmsan varning til jólanna og aðrar vörur, svo sem kort, jólapappír, perur, kerti, handunna muni, greni og margt fleira, sjálfum sér til styrktar og öðrum til gagns og gamans. Auk þess verður Kvenfélagið Katla með kaffisölu. Seljendur á markaðinum eru Handverksfélagið Assa, Lionsklúbburinn, Vinafélag Barmahlíðar, Krabbameinsfélag Breiðfirðinga, Björgunarsveitin Heimamenn og Kvenfélagið Katla.

 

Félögin sem að markaðinum standa hvetja fólk til að versla í heimabyggð og lofa jólastemmningu í Kaupfélaginu!

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31