26. nóvember 2013 | vefstjori@reykholar.is
Jólamarkaðurinn í Nesi um næstu helgi
Jólamarkaðurinn árvissi í Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi verður núna á laugardag og sunnudag kl. 13-18 báða dagana. Á boðstólum verða handunnir munir, kerti, greni, bækur og margt fleira, auk þess sem kvenfélagið selur kaffi og kökur.
Að markaðinum standa (talið í stafrófsröð):
- Björgunarsveitin Heimamenn
- Handverksfélagið ASSA
- Krabbameinsfélag Breiðfirðinga
- Kvenfélagið Katla
- Lionsdeildin á Reykhólum
- Nemendafélag Reykhólaskóla
- Vinafélag Barmahlíðar
Á laugardag verður kynnt bók um Jóhannes Arason frá Múla í Kollafirði (1913-2009). Meðal viðfangsefna Jóhannesar um dagana var grjót- og torfhleðsla víða um land. Hæfileikar í þeirri list eru ættgengir eins og kunnugt er.